Færsluflokkur: Lífstíll

Furðulegt upphlaup á fingri Jóhönnu Sigurðardóttur

Sumt fólk er hreinlega veruleikafyrt og siðblint, Það telur sig hafa rétt á því að vanvirða þjóð sína í beinni útsendingu þegar því líkar ekki vilji almúgans, það gerði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í gærkvöldi er hún sýndi þjóðinni fingurinn! Jóhanna Sigurðardóttir á að segja af sér nú þegar ásamt ráðuneyti, annað er óhæfa.

Johanna-gefur-fingurinn
Hér á landi ríkir vond ríkisstjórn, ríkisstjórn er treystir ekki einu sinni þegnum sínum, ríkisstjórn er fer fram með óheillindum, forsjársýki og nú krefst þjóðin þess að þingkosningar verð haldnar ekki seina en strax, Íslands börnum til heilla!
Þá hefur borgarstjóri Reykjavíkur gjaldahækkarinn Jón Gnarr tilkynnt í heimspressunni og lofað sjálfum sér, borgarbúum sem og þjóðinni allri að hann muni flytja til Grænhöfðaeyja verði NEI við Icesave ofaná, verður hann nú maður meiri ef hann stendur einusinni við stóru loforðin og flytur hið fyrsta og hafi lágkúrubrandaraskjóðu sina með sér.
Upptöku af fingrinum má sjá hér! tími ca: 41:29 í upptöku.

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR ! :)

 


mbl.is Treystu ekki fólkinu í landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Al Gore mokar snjó um víða veröld!

alÆtli það séu ekki ófáir er spá í það hvað Al Gore er að gera þessa dagana, hann skyldi þó ekki vera að moka snjó kalinn.

The holy crap: Al Gore er jú einn að þessum vitgrönnu mönnum er étur upp delluna er vellur útúr tanngarði fólks er allt þykkist vita, t.d. eins og það að Jörðin sé að farast úr hita, hver man ekki gáfurnar er hann sýndi sem varaforseti árin 1993 til 2001. 

Þar hélt maður hreinlega að maðurinn væri bara grínari, en því miður var ekki svo, heldur var þar á ferð aumur kjánaskapur.

Iceland_satellite-mini
Hvað um það, en nú kemur það í ljós að líklegast sé jörðin bara í sínum hefðbundnu hita og kulda sveiflum, og nú að fara inn í kulda sveiflu, við taki allt að 30ára kulda tíð með snjó um allar jarðir og skíðafæri í Hveradölum enda snjóar og snjóar um víða veröld.
Og Al Gore segir bara sí svona: Do Winter What Happend ?
winter-really-sucks-al-gore

Nú þegar ofurviktin (óviktuð)  í umhverfisráðuneytinu er búin að gaspra úr sér vitið, að hætti Al Gore, væri henni umhverfisradherranær að fara fram á það við bangsa pabba Steingrím J. að fella niður þessa ansk.. kolvetnis skatta, þannig að fjölskyldur geti ekið milli húsa og skutlað börnum sínum í skóla í vondum veðrum, kynnt bíla sína sæmilega og húsakynni, hvað þá þennan okur skatt á rafmagn er Vinstri Glærir hafa einnig troðið uppá þjóðina, þannig að nú getur hún ekki lesið við rafljós lengur, hvað þá stautað í rauða kverinu, handbók VG. Þetta sýnir berlega að viskubrunnur Vinstri Æringja er gjörsamlega tómur og allt sem frá þeim kemur er tóm skattlögð tjara...

Það er ljóst að Al Gore verður að skila Nobel verðlaununum ásamt öðrum er hann gorefékk fyrir ósanninda áróðurs vinnu sína vegna hitnunar jarðar árið 2007.

Það er vonandi að hann verði dæmdur til þegnskyldu vinnu á snjóskóflu fyrirgore_snowstorm lygaþvæluna er hann bar á borð fyrir saklaust fólk út um allan heim. 

Þetta fólk situr nú í skíta kulda og á ekki fyrir ofurskatt lögðum orkugjöfum til að veita sér yl. 

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)

Greinin er endur birt vegna veðurs!


mbl.is Fólk hvatt til að ganga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún var kona !

Hún var kona sem fékk menn til að stökkva fram af brú!
woman-driving-car-adjusting-mirror-applying-make-up-and-talking-on-cell-phone-with-multiple-arms-giclee-print

Hún var kona sem fékk menn til að hlaupa um stræti.
Hún var kona sem fékk menn til að aka útaf.
Hún var kona sem fékk menn til að klifra í trjám.
Hún var kona sem fékk menn til að taka 180 gráðu beygjur.
Hún var kona sem fékk menn til að nauðhemla..........
Já...Hún var kona með bílpróf!!!!!!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  !  


Ekki ráð nema í tíma sé tekið...

Sameiginlegt forræði yfir dótturinni yfir gröf og dauða, Já leikarinn Dennis Hopper hefur ávalt verið í uppáhaldi hjá mér bæði sem leikari og í daglegu lífi enda uppátektar samur með eindæmum, því eru fréttir af veikindum hans ekki góðar fréttir, hvað þá að leikarinn eigi einungis eftir um einn mánuð ólifaðan.

2456083

Ég skil kallinn vel að vilja skilja við kerlinguna, enda marghverjar amerískar konur ákaflega leiðinlegar er aldurinn færist yfir þær og botnstykkið þykknar, nú er það svo að maður veit ekkert hvað bíður hinumegin ferjustaðar og ekki víst að það sé kostur að vera giftur þykkbotnaðri konu á endurnýjunar aldri, það er því einlæg von mín að Dennis Hopper fá vilja sínum framfylgt þannig að hann get gengið ólofaður yfir móðuna miklu. 

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  !    


mbl.is Óskaði eftir skilnaði á dánarbeðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ICESAVE þetta er fólkið er sagði já

Þann 28. ágúst samþykkti Alþingi ríkisábyrgð á Icesave samningnum. Þau sögðu já. Við gleymum aldrei 28. ágúst 2009. 

Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband