Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Álfheiður Ingadóttir, fimmti varaforseti Alþingis "Vítaverð"

Það má sanni teljast að Álfheiður Ingadóttir, fimmti varaforseti Alþingis vakti sérstaka athygli erbjollusaudur hún ávítti Tryggva Þórs Herbertssonar fyrir að nota orðið vítavert, hvað fimmta varaforseta gengur til er mér með öllu óljóst ? Er fimmti varaforseti að vekja á sér athygli á kostnað Tryggva Þórs Herbertssonar eða fór hún vitlaust fram úr rúmi sínu? Hvað á maður að halda konan varð sér til skammar og það sem verra er þinginu til leiðinda. Til setu sem forseti þingsins verður að veljast fólk er veldur starfanum, ekki bjöllusauðir er klingja í sífellu eftir lundarfari sínu þennan daginn eða hinn, þingi og þjóð til ama. Þetta á jafnt við alla forseta þingsins, þann fyrsta sem og þann FIMMTA!

Í fróðlegri athugun Eyjunnar í ræðusafni Alþingis á netinu, sem nær til ársins 1974, leiðir í ljós að þingmenn hafa notað orðið ‘vítavert’ 160 sinnum á þessu tímabili. Hefur það sjaldnast verið gert í tengslum við umræður um áminningar og þingvíti, heldur oftast í almennum ræðum um einstök mál. Þá hefur orðið verið notað um 40 sinnum í þingskjölum á sama tímabili. Dæmunum fjölgar ef ýmsar beygingarmyndir orðsins, svo sem ‘vítaverður’ og ‘vítaverðar’ eru einnig taldar með.

Sjá má slóð í upptökur af framferði Álfheiðar Ingadóttur fimmta varaforseta Alþingis HÉR!

Skyldi þetta hafi verið skítlegteðli eða er eitthvað annað hér að baki?

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

'


Það á ekki af forseta vorum að ganga er hann skreppur á bak.

Ólafur virðist þeim ósköpum gæddur að geta ekki hangið á baki svo vel sé, ég veit þó ekkert hvernig hann ber sig að, eða hvernig reiðmaður Ólafur Ragnar er. Þetta glæsilega fall bar að með svipuðum hætti og fyrir 10 árum þegar Dorrit hlúði að manni sínum eins og nú, hann mun vera axlarbrotinn.

hestamaðurinn-Olafur

Það skiptir miklu máli hvernig Ólafur ríður, hvort hann ríði hart eða hægt og ljúflega eða fylgist að með öðrum í hópreið, síðan er það náttúrulega stóra spurningin, var vel valið undir Ólaf ? 

Megi Ólafur ná bata hið fyrsta og legg ég til að hann leggi af glæsilega reiðmennsku um sinn, eða stundi þær framvegis heima við enda stutt í hjálp, ef leggja þarf hann inn.

 

P.S.  Hesturinn heitir Glæsir og er hann í góðu standi eftir slysið. Honum varð ekki meint af.

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Ólafur Ragnar slasaðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt kemur þetta að lokum...

Opnað fyrir eitt Kreditkort til handa Íslendingum ef þannig má að orði komast og er það vel sýnir að okkur eru ekki allar bjargir bannaðar.

fjármalafjotrar 
Coface er þriðja stærsta greiðslutryggingarfélag í heimi, en enn sem komið er hafa þau tvö stærstu, Euler Hermes og Atradius, ekki opnað fyrir Ísland. Það verður fróðlegt að heyra og sjá útúrsnúninga sem og hótanir Breta og Hollendinga um varnagla Icesave samningana! Ísland á að gefa þeim langt nef og greiða eingöngu eftir getu. Aðeins það er við eigum með réttu að greiða, ekkert annað. Ef hrossabresturinn Svavar Gestsson hefði ekki verið svona fljótur á sér og á leið í sumarfrí væri  staðan allt önnur og málið löngu farið fyrir dómstóla, hvernig væri að fjármálaráðherra tæki það nú upp hjá sjálfum sér og svipta manninn launum, enda karl uglan kominn á aldur, venjuleg verkamannaeftirlaun ættu að duga Lallanum, enda á Íslenskaþjóðin ekki að þurfa borga ofur eftirlaun og bitlinga til handa manni er nær lagði þjóðina niður sexfetin, þannig menn eiga ekki rétt á að sinna opinberum störfum né þiggja ríflegar sponslur frá Íslenskaríkinu OKKAR!
Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Opnað fyrir Ísland á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Her manna vinnur nú fyrir kanann i Keflavík!

Á keflavikur flugvelli vinnur nú her manna við að setja kanann upp að nýju, það virðist sem kaninn ætli sér að taka Ísland með látum í þetta sinn, slíkur er hraðinn við uppsetningu tækjabúnaðar og ráðningar mann til starfa fyrir kanann, það fór þó aldrei svo að kaninn yrði lengi fjarverandi og velta menn nú fyrir sér hvað Steingrímur Jóhann taki til bragðs er kaninn hefur starfsemi sína aftur á vellinum.

kaninn2

Hafa margir haft á orði að nú verði teknar upp, áður aflagðar Keflavíkur göngur, verður spenandi að sjá hvort ekki verða þar kunnugleg andlit á ferð. Þá hefur heyrst að fyrsta flugtak Kanans verð þann 1. september næst komandi og bíða menn spenntir eftir að sjá hvort hljóðmúrinn verði brotin í flugtakinu. 

KANINN - Armed Forces Radio Service Keflavik eða AFRTS

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

Heldur er Icesave-pólítík Steingríms Jóhanns efnislaus !

Hann ætlar sér ekki að kyngja því að hrossabrestur vinur hans hafi klúðrað Icesave samningnum við greyin Breta og Hollendinga, já maður segir víst greyin um hunda. Steingrímur Jóhann Sigfússon verður gott nokk að kyngja því að það verður að semja aftur eða öllu heldur koma Bretum og Hollendingum í skilning um það að við borgum ekki meir en þjóðin þolir, annað er ekki í boði !

 Steingrímur Jóhann virðist vera algjörlega út á þekju er við hann er rætt svo mikið er víst! Maðurinn fer ávalt með sömu rulluna um Icesave eða "Engin ástæða væri til annars en að samþykkja samningana". Þetta  hefur hann sagt fyrirvara laust sem og með fyrirvara ?! Honum virðist það engu skipta hvort fyrirvara eru eður ei, bara samþykkja og allt er klappað og klárt. Nei ef það væri nú svo gott, Það er löngu ljóst að maðurinn er í einhverju allt öðrum hæðum en lágt settur skattpíndur almúginn. Það er því bráð nauðsinnlegt að hjálpa manninum niður !

Steingrimur-J

Þessi aðferðarfræði Steingríms Jóhanns er í einu orði sagt efnislaus!

Það veit sá er allt veit að sitjandi stjórn er ekkert annað en saman safn af laumupúkum er koma ekki til dyranna eins og þeir eru klæddir heldur íklæddir spunavef lyga. þetta er stjórnvaldið á Íslandi, fólk er getur varla tölt sér á salerni án þess að ljúga til um aðgerðina eða (að)ferðina. Við þurfum stjórn með bein í nefinu, stjórn eins og þá er leiddi þjóð okkar í gegnum þorskastríðin, og mest af öllu þurfum við sterka kynningar herferð á stöðu okkar, smæð og getu eða getuleysi þjóðarinnar gagnavart kúgunnar stefnu Breta og Hollendinga. Steingrímur Jóhann verður að fara gera sér grein fyrir því að sólin sest í Bretaveldi. Þá er Steingrímur komin á þann aldur í pólítík að hann ætti að vita þann einfalda sannleika, þvermóðska og ósannsögli verður ekki lengur liðin meðal þjóðarinnar. 

Fellu pólitík Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Jóhanns er með öllu óþolandi. Þjóðin á ótvíræðan rétt til að vita hverju fram vindur frá degi til dags, enda hennar að greiða á endanum.

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Eiga að viðurkenna staðreyndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju spáir þú ?

Spáðu í mig þá mun ég spá í þig sagði skáldið, en ég spái því að mikil tíðindi berist innan tíðar!
Fortune Teller
Hvað það nú verður, ekki er gott að spá því!


Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

Steingrímur Jóhann Sigfússon heimtar afsökun!?

Hvernig stendur á því að ekki er skipt um yfirmenn í hinum ýmsu stofnunum kerfissins er komu að hruni bankanna? Það er athyglisvert að en starfar mikið til sama fólkið við stjórn Íslenska hagkerfisins og var hjá  bönkunum og innraeftirlitinu fyrir hrun? Hvað veldur mér er spurn?

Hvernig stendur á því að Steingrímur Jóhann Sigfússon leyfir sér að senda óhæfan vínanda til alvarlegra samninga gerðar fyrir þjóðina, vínanda með enga reynslu né getu til eins né neins, nema það vera prumphænsni fyrir snobbið í Skandinavíu? Hvers vegna lokaði Steingrímur á alla þá hjálp mætra manna og sérfræðinga er stóð í boði ? Hvað veldur slíkum hrossabrestum hjá Steingrími ?

sorry

Hér er nauðsynlegt að Steingrímur Jóhann Sigfússon dragi hausinn úr sínum sandkassa og biðji þegna þessa lands afsökunar á gjörðum sínum ! steingrimur-med-hausin-i-sandi

Hinum skal refsa og gera eigna lausa, það er nefnilega svo að þjófar þola það engan vegin að þeim sé gengið og (eigur þeirra) þjófstolnar gerðar upptækar. Það er versta refsingin fyrir þá að taka af þeim fenginn.

Ég bíð eftir afsökun frá fyrri sem og núverandi ríkisstjórn á vinnubrögðum eða öllu heldur vinnubragðaleysi, hvað þá þeirri stjórn er nú situr og matar almenning á eigin sannleika í Icesave málinu, sér í lagi öllu því pukri og óheillindum er fylgt hefur því ógæfumáli.

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Bíður eftir afsökunarbeiðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Judas Iscariot hinn Íslenski hrossabrestur.

Menn fara ekki var hluta af því í fréttum hverskonar fljótfærnisvinnubrögð voru viðhöfð af hendi samningarnefndar Íslands og þá eina helst Svavari Gestsyni, haft var eftir honum sjálfum að hann ætlaði að haska þessum af því hann nennti ekki að hafa þetta hangandi yfir sér í sumarfríi sínu, getur þetta verið rétt að mann auminginn hafi hent þjóðinni fyrir úlfa og krotað nafn sitt undir óhæfuna, skálandi að lokum við Breta og Hollendinga? Því trúi ég bara ekki, að nokkur maður geti verið svo heimskur að svíkja þjóð sína á slíkan hátt. Það er bara einn til verri í sögunni og hann var nemdur Judas Iscariot. Nú virðis komið svo að Íslenska þjóðin hafi eignast sinn eigin Judas Iscariot !
Judas Iscariot
Þá segir fjármálaráðherra Steingrímur Jóhann Sigurðsson að það ekki hafa verið mistök að láta Svavar Gestsson leiða Icesave samningarnefndina, í stað þess að fá erlendan sérfræðinga í verkið, og hælir flokks bróðir Svavari í há stert! Mennirnir eru gjör sneyddir allri sóma kennd og má þá skilja örvæntingu þeirra við að fela óhæfu plaggið fyrir þjóðinni. Það er dapurleg tilfinning að þessir menn telji sig vinna Íslandi gagn, það er gott ef menn geta logið en að geta logið svo að sjálfum sér er ótrúlegt, sveiattann á ykkur þvílík er hneisan. Nú er svo komið að það lítur út fyrir að allir þingmenn VG muni samþykkja frumvarpið á Alþingi. Hvernig er hægt að ofurselja sig svona lyginni ? Okkar stolta þjóð með allan sinn vilja getur ekki ráðið við nýðings plaggið breyt eða óbreyt, það er flestum Íslendingum full ljóst.

Eftir situr svo spurningin um hvað var Svavar Gestsson eiginlega að hugsa er hann páraði nafn sitt undir aftöku á Íslenskuþjóðinni?

Nafn þessa manns er leiddi íslensku samningarnefndina og sveik þjóð sína, verður ávalt í mynni barna Íslands, eða svo lengi sem Íslandsbyggð stendur!
 
Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Full samstaða um Icesave í VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúleg Jóhanna !

Við áhorf á frétti RÚV fékk ég hreinlega hland fyrir hjartað eða þannig. Nú  lítur út fyrir að það hafi aldrei verið annar vilji Jóhönnu en að setja fyrirvara og varnagla á Icesave samningana, vei lygum þessara konu. Nú segist hún allt að því Lilju kveðið hafa, en ekki ætlað sér að lauma óskoðuðum nauðarsamningum í gegnum þingið óséðum, Það veit hvert manns barn þjóðarinnar, að það þurfti að handtoga hvert plagið á eftir öðru upp úr leyndó skúffu kerlingar og sennilega ekki öll kurl komin í ljós enn. Forsetisráðherra heldur greinilega að þjóðin, saman standi af eintómum börnum og eða vanvitum, er ljúga má öllum fjandanum að. En segja má að þarna hafi spádómur Sæmundar komið fram! Jóhanna Sigurðardóttir tók hreinlega í höndina á sjálfri sér og þakkaði sjálfri sér pent fyrir og það í beinniútsendingu! Ef þetta er ekki heimsmet í hræsni veit ég ekki hvað er...

svinslegtedli

Ég velti oft fyrir mér hvað gerir fólk svínslegt í sér ?

Kannski Steingrímur fást til að svara því ?

Þá trúi ég engu um þessa svo kölluðu fyrirvara sem fulltrúar allra flokka nema framsóknarflokksins í fjárlaganefnd samþykktu og eiga að tryggja að greiðslur vegna Icesave verði ekki of íþyngjandi fyrir þjóðina, tómt bull að mínu hyggju viti eingöngu gert til að slá ryki í augu almennings.

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Hagvöxtur stýri greiðslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðin svikin í hendur örbyrgðar ! Hver er svikarinn á myndinni?

Þegar svik starfandi Ríkisstjórnar koma í ljós, sér þjóðin að verkin er starfandi stjórn framdi eru ófyrirgefanlega! Nú þegar er búið að binda þjóðina á klafa og  hún ræður engan vegin við greiðslurnar, þá mun þjóðin rísa upp og dómstóll götunar tekur við. Þá mun þetta landráða fólk biðja guð að hjálpa sér. Það er ljóst að á Ísland er ekkert framundan nema sultarólina og aftur hvarf í moldarkofan. Það mun Steingrími hugnast afar vel ! Það er einnig með ólíkindum að það þurfi langa og erfiða fundi til að ná fram einhverri glætu í þennan óhæfusamning þessa fólks er situr á sínu breiðu rössum í konungshúsi við Austurvöll, það er furðulegt nokk, að þetta er fólkið er á að gæta hagsmuna þjóðarinnar, en gerir allt annað og liggur á bakinu fyrir Breta skömmina sem og Hollendinga. Heimurinn er loksins að átta sig á nauðungar gjörnað Breta og Hollendinga gagnvart Íslendingum, hann sér líka undirlægju hátt Íslensku ríkisstjórnarinnar og skítlegt eðli Jóhönnu um að setja land okkar og stjórnartauma undir Evrópuvaldið, með þeim skítlegaklút lemur hún þingið áfram með lygum og hótunum, við þjóð sína segir hún bara ósatt enda telur hún þjóð sína börn!

Svikarinn

Meira segja Andrew Hill segir í Financial Times í dag að "Bretar hafi beitt Íslendinga hörku, eitthvað sem þeir hefðu aldrei gert gagnvart stóru ríki" ekki nema von að Andrew Hill segi þetta hann veit að Bretar eru gungur og leyni plottarar upp til hópa, þess ber en merki t.d. á Arabíuskaganum og í suðaustur Asíu. Og nú er það örríkið Ísland er verður fyrir barðinu á plottinu með digri hjálp sitjandi stórnar.

Ég segi svei þér Jóhanna Sigurðardóttir þinn tími mun koma, já til þess að svar til saka þinna og þíns meðreiðarsveins!

Megi Gordon Brown svelgjast illilega á tungu sinni og gjörðum, fari Maxime Verhagen sömuleið !

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is FT: Ábyrgðin sameiginleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband