Færsluflokkur: Kjaramál

Aumurinn ég...

Svik Bjarna Benediktssonar við lífeyrisþega eru ömurleg því hef ég hálsbrotin auminginn sagt mig úr flokki allra stétta en í hann var ég skráður við fæðingu. Sjálfstæðismenn er nú skunda á landsþing ættu að hugsa sinn gang því senn líður að kosningum ...

svikin2

Slóð í forsíðu og aðrar furðu greinar: HÉR  ! :)   

 


Bakka bræður...

Bakka bræður 

Þessir bræður boðuðu að allar sex Jóhönnu skerðingar á örorku og kjörum eldri borgara frá árinu 2009 yrðu afturkallaðar þegar eftir kosningar.

Aðeins tvær hafi nú gengið til baka restin kemur sennilega aldrei enda lugu þeir hvor í kapp við annan um að mál eldri borgara og öryrkja yrðu löguð STRAX að afloknum kosningum, á daginn hefur komið að þessir kumpánar notuðu sömu aðferð og frú Jógrímur þar að segja lugu beint uppí opið geðið á kjósendum og almúginn féll fyrir skruminu á sama hátt og áður er Jógrímur laug!

Aðgerðir fyrir heimilin eru/voru skrifaðar á munþurrkur er nú hefur verið fleygt eins og tít er um þannig skrifelsi...  

Þolinmæðin er þrotin... Ekkert er aðgert nema það að málið er sett í nefnd á NEFND ofan...

Nefndir ykkar geta starfað endalaust eins og sagan sýnir án úrlausna og það á ofur launum á kostnað skattgreiðenda.

Ég segi bara lítið svei enda orð laus... 

                         Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)   


Væntanlegt andlát velferðar!

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er kennir sig við velferð er stjórn ósanninda og svika, þar er og var enga velferð að finna þvert á móti réðist Jóhanna Sigurðardóttir á heilbrigðiskerfið, skar niður og skar niður hvað eftir annað langt út fyrir öll þolmörk eins besta heilbrigðiskerfis heims, þeim aurum er til voru var hent já hent í það gæluverkefni Jóhönnu Sigurðardóttur að setja Íslensku þjóðina undir ægis vald gjaldþrota fyrirhyggju kóna í Brussel.

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
Þar fóru milljarðar forgörðum er betur áttu heima í velferðarkerfinu og landsspítalanum að ógleymdri heilsugæslunni, ekki nóg með það þessi stjórn er kenndi sig við velferð henti síðan ófáum krónum í milljónum talið í stjórnarskrárbreytingar, stjórnarskránni skildi breyta, ekki það að stjórnarskráin hefð eitthvað með hrunið að gera, nei forgangsröð svokallaðrar velferðarstjórnar var kolröng og ekkert gekk eftir nema jú tapað fé og tapaðir milljarðar!

Heimilum landsmanna var hreinlega nauðgað, heimsmet slegin í fógeta aðgerðum og  börn borin út úr friðhelgi heimila sinna, heimilin voru nauðbeygð og skikkuð til taka á sig tap bankana, tap er bankarnir áttu sjálfir enda voru þeir rændir innan frá og er það þjóðarskömm að láta heimilin gjalda fyrir það, ekki var staðar numið heldur ræðst velferðar stjórnin að menntun barna okkar og öllum þeim er minna sig máttu. 

11.2 milljónir voru lagðar til hliðar og heyrnamerktar hvernig mætti hjálpa heimilum landsmanna en ekkert var gert fyrir heimilin, enda gerði þessi ríkistjórn velferðar ekkert hreint EKKERT!

Ekki má gleyma öllum þeim aragrúa landsmanna er flúðu land, hreinlega gáfust upp á velferð Jóhönnu Sigurðardóttur er nú var nefnd heilög, en þeir er ekkert komust sátu heima og löptu dauðan úr skel, ellilífeyrisþegar og öryrkjar voru lagðir í einelti og sviknir æ ofan í æ!

Aðþrengt var svo að Tryggingastofnun að stofnunin hefur þurft að draga saman seglin og afgreiðslutími hennar hefur verið skertur verulega, eyða skjólstæðingar hennar nú löngum stundu í bið eftir úrlausnum sinna mála allt þetta er gert í nafni velferðar og forgangs vali verkefna  ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna ! 

En samkvæmt lögum um almannatryggingar á lífeyrir aldraðra og öryrkja að hækka jafnmikið og laun eða hliðstætt hækkun verðlags.

Eða eins og segir í lögunum: Við breytingar skal taka mið af launaþróun, þó þannig að bætur hækki aldrei minna en verðlag skv. vísitölu neysluverðs.

Þessu hefur ekki verið framfylgt af velferðarstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og sennilega stóð það aldrei til, slík var velferðar hugsun forsætisráðherrans!

Lagaákvæði þess skiptu Samfylkinguna og Vinstri græna engu þeim stóð á sama um eldri borgara okkar, fólkið er ól okkur upp, gætti og hlúðu að okkur er ábjátaði, þannig var velferð í huga Jóhönnu og Steingríms! 

Öryrkjabandalag Íslands telur að hækka þurfi lífeyri öryrkja um tæp 30%, í öllu falli liggur fyrir, að lífeyrisþegar eiga inni verulegar hækkanir á lífeyri eða 20-30% hækkun lífeyris en þessar lækkanir áttu að vera tímabundnar að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur, en er hún hækkaði já hækkaði laun ráðherra, þingmanna og hæstaréttardómar er tekið höfðu á sig skerðingu ásamt, taktu nú eftir aumum ellilífeyrisþegum og örykjum þá giltu þær hækkanir einnig afturá bak hjá þeim fyrirmönnum en lítilmagnanum er minna mátti sín og ekki mátti við skerðingu var gert sitja uppi með skerðinguna, nú var öllum ljóst að velferðar gæska Jóhönnu Sigurðardóttur er með ólíkindum!

Þessi leiðrétting lífeyrisþega verður að koma strax þegar ný ríkisstjórn tekur við völdum enda augljóst að sitjandi stjórn Samfylkingu og Vinstri græna vill ekkert með velferð hafa né af vita! 

 ekki má gleyma fyrirskipunum velferðarstjórnarinnar er lét þau boð út ganga að nú skildi ekki,  EKKI keypt inn þekkt og reynslu góð lyf fyrir Íslensku þjóðina heldur skildi gefa sjúklingum samheitalyf og allra helst þau er minnst kostuðu, það vita allir er eitthvað hafa í guðs gjöf fengið að þú færð þau gæði er þú borgar fyrir í 99,9% tilfella, enda fór nú svo að marghver þessara samheita lyfja voru allt að því ónýt ef ekki alónýt líkt og þær indversku sprautunálar er keyptar voru, þær bitur ekki, ekki einu sinni á blautan skít, ónothæft rusl slíkur var sparnaðurinn reyndar var þetta sóun á fjármunum og heimskra manna glæfraráð, ekki nóg með það, fjöldin af sögum ganga um sjúklinga er hreinlega létust, taktu eftir þeir létust!, þoldu ekki samheitalyfin, krabbameins sjúkir jafnvel komnir í dágóðan bata létust snögglega eftir að lyfjum þeirra var breyt eða skipt út fyrir samheita lyf, sjúkdómurinn tók sig upp og tók þá !

Niðurskurðurinn og sparnaðurinn endað sem sóun þvílík sóun í þetta skiptið var það sóun á mannslífum!

Velferðarstjórn..hvað ? já maður spyr sig! 

Aðrir ögn heppnari fundu ný lyf eftir miklar prófanir og kostnað, lyf er veittu nokkra hjálp en aldrei eins og þaul prófuðu gæða lyf er áður voru notuð! 

Velferðargæði var hugtak er ekki fannst hjá velferðarstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.

Jóhanna Sigurðardóttir ásamt Steingrími Sigfússyni ber fulla ábyrgð á þessum dauðsföllum enda voru þetta þeirra ákvarðanir og forgangs röðun, peningarnir voru til en notaðir í allt annað en það sem máli skipti eða velferðarkerfið, sjúkrahúsin, heilsugæsluna, en styrkur hverjar þjóðar liggur í heilbrigði hennar, þetta vita flestir!

Það að henda milljörðum í ekkert á að varð við landsdóm og ber að draga Jóhönnu Sigurðardóttur ásamt Steingrími Sigfússyni fyrir landsdóm enda dómgreindarleysið algjört og vítavert.

Nú þegar líður að alþingis kosningum ættu ellilífeyrisþegar og öryrkjar að taka höndum saman og veita stjórnarflokkunum náðarhöggið, spár lofa góðu, látum nú kné fylgja kviði og þurrkum út falsflokkana er kenndu sig við velferð !

Samfylkingin ásamt vinstri grænum hafa gert orðið velferð að klámyrði...!

Allir samningar og loforð um uppbyggingu atvinnulífs voru innan tómt orðgjálfur og svik, ekkert var aðhafst ekkert framkvæmt, atvinnuleysið varð að vofu er en hangir yfir þjóðinni.

Svo til allir okkar færustu læknar og hjúkrunar fólk er flúið land, verktakar og tæki þeirra eru einnig farin!

Voða verk Jóhönnu Sigurðardóttur 

Um forsætisráðherrann Jóhönnu Sigurðardóttur virtust gilda önnur lög en um almenna borgara, forsætisráðherrann hunsaða gildandi lög, hunsaði hæstarétt og gaf réttinum langt nef.

Þessir stjórnarhættir ásamt virðingarleysi Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir lögum og reglum leiddi til þessa að skattakerfið, stjórnsýslan, Alþingi er trausti rúið!

Eftirmáli og minning um ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ásamt Steingrími j. Sigfússyni eru minningar um svik, ósannsögli, fyrirhyggjuæði og heimskramanna gjörningar...

Mér er nú ljóst að Guð hafði öðrum og mörgum hnöppum að hneppa daginn þann er hrunið varð,  daginn er hann var beðin um að hjálpa íslensku þjóðinni, þjóðin átt það svo sannarlega ekki skilið að fá yfir sig þær skelfingar er yfir hana hafa dunið í óstjórnartíð Jóhönnu Sigurðadóttur og Steingríms Jóhanns Sigfússonar, hver man ekki eftir því er parið reyndi að kæfa þjóðina með icesave ekki einu sinni heldur þrisvar!

Upl: ég og þú!
 

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :) 

 


mbl.is Framsókn fengi 40%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólaglaðningur öryrkja er í anda velferðar...

Velferðarstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur slær nú öll fyrri met í aðför að þeim er minnst mega sín og en og aftur þakkar hún kjósendum sínum fyrir stólinn semog launin er hún þiggur.

Ekki virðist Jóhönnu Sigurðardóttur hafa dugað að skera bætur kjósenda sinna þ.a.s. lífeyrisþega niður um rúman helming heldur bætir hún en um betur og ræðst með klærnar í jólauppbót þeirra er minnst mega sín, allt í nafni velferðar.

Johanna Sigurðardóttir

Desember uppbót lífeyrisþega í ár er 12% lægri, 12% lægri en árið 2011 en þá var hún 42% á fjárhæðir tekjutryggingar og heimilisuppbótar í stað 30% í ár,  það munar um minna þegar ekkert er til... 

Hætt við að mörg heimili lífeyrisþega hafi lítið til að moða úr þessi jólin og einhver verði nú grátur svangra barna er hvorki fá jólamat við hæfi né jólagjafir hvað þá sæmileg föt í tilefni hátíðar ljós og friðar.

Jóhönnu Sigurðardóttur virðist ekki svíða að sjá sína fyrrverandi skjólstæðinga ekki geta séð sér farborða og það virðist vera markmið velferðarstjórnarinnar að stór auka örbirgðina!

Það er líðum ljóst að Jóhönnu Sigurðardóttur en nokk sama um þá staðreynd að tug þúsundir lífeyrisþega tapaði nær öllum ef ekki öllum sparnaði sínum við fall bankanna enda hafði þeim verið ráðlagt að fjárfesta í bönkum og sjóðum, nú er svo komið að það er bara ekkert eftir, allt löngu farið, en það er ekki nóg að mati velferðarstjórnar Jóhönnu, heldur ræðst jóla mærin Jóhanna Sigurðardóttir en og aftur á tekjurnar, Jóhanna Sigurðardóttir veit það mæta vel hversu langt, langt er síðan þær fóru niður fyrir allt er getur kallast velferð eða hungurmörk hjá elli og örorkku þegum, en henni er sk.. sama, lyftir bara öxlum og strýkur ketti sínum.

    Já mikill er jólaandi þinn Jóhanna Sigurðardóttir.

Ættla má að þessi jólin verði jólaköttur Jóhönnu bústnastur katta. Jólakötturinn

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :) 

Allt er þessi velferðarríkisstjórn gerir er ótrúlega ógeðfellt! 

Það líður að kosningum til Alþingis, endur reisum nýtt Ísland og Íslenska þjóð!

 


Meistari Gnarr engum líkur!

Það fór nú svo ... Svo bregðast krosstré sem önnur tré.. Ahh, og að koma jól fín sending frá þér Mr. Gnarr!
Mr-Gnarr-kicks-my-ass
Mun ekki veita þér vinnu aftur ekki einu sinni sem jólasveinn!

Fleiri myndir og frétti af svona fólki, eða bara venjulegu fólki er að finna HÉR!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)


mbl.is Allir skattar og gjöld hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband