Færsluflokkur: Spaugilegt

Borar ekki í nefið...Tekur nú steininn úr!

Þá er hafin þáttaröðin kenni öðrum um, en borgarstjóri hefur hafið fyrsta þátt á netinu.

Þar lýsir hann yfir að fólk hamist nú við að bera grjót í götu flokks hans ''besta flokkinn'' og þá að sjálfsögðu í hans eigin götu, er hann þess full viss að fjöldi manns sé að eyða tíma sínum og fjármunum í þennan grjót burð, leggi alveg óumbeðið steina í götu hans, bestu götuna.

Is-Mr-Gnarr-Stonde

Ég mæli með því við fólk er hug hefur á að leggja stein eða steina í götu borgarstjóra leggi hér eftir eingöngu til þess gerða steina, en þeir steinar er henta hvað best eru legsteinar og vel við hæfi í Bestu götu. ...

Lesa má ummæli hins horaðaða borgarstjóra (J. Gnarr) hér! 

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :) 


Össuri Skarphéðinsson utanríkisráðherra farinn á límingunni...?

Á Bak við þungbúna ásjónu utanríkisráðherra er maður fullur angistar enda ljóst að einhver er að njósna um hann og húsmóðir hans.

Það sem er öllu verra og vekur angist Össurar er sú staðreynd að einhver lekur leyndóskýrslum um hann og húsfrúna, það þolir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra engan vegin.

Ossur-and-johanna-with-cia
Össur um leyniskjölin á Wikileaks: Grafalvarlegt og óviðunandi, og krefst skýringa Bandaríkjamanna. Þeir eru allstaðar, ''everywhere'' þessir spæjarar skrækir Össur argur...

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :) 


Hún var kona !

Hún var kona sem fékk menn til að stökkva fram af brú!
woman-driving-car-adjusting-mirror-applying-make-up-and-talking-on-cell-phone-with-multiple-arms-giclee-print

Hún var kona sem fékk menn til að hlaupa um stræti.
Hún var kona sem fékk menn til að aka útaf.
Hún var kona sem fékk menn til að klifra í trjám.
Hún var kona sem fékk menn til að taka 180 gráðu beygjur.
Hún var kona sem fékk menn til að nauðhemla..........
Já...Hún var kona með bílpróf!!!!!!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  !  


Siðblindur peninga braskari með ranghugmyndir!

Stórfurðulegt er menn vita ekki hvenær þeir eiga að hætta og að þeir séu með allt niðrum sig, en þannig er með ný ríkan og væntanlega verðandi staurblankann Íranann Roberts Tchenguiz. Hvernig hann finnur það út að Kaupþing banki skuldi honum er mér leikmanninum hulin ráðgáta. Heildarkrafa sem sjóður í eigu Roberts Tchenguiz lýsir í þrotabú Kaupþings, hljóðar upp á 317 milljarða króna, en þar af eru 244 milljarðar skaðabótakrafa.

Robert-Tchenguiz

Skaðabótakrafa vegna hvers ? Lánaði Kaupþing ekki 1,4 milljarða evra bara sí svona, þar sem Persíu maðurinn átti rúm 5% í Exista er aftur átti Kaupþing að miklu leiti. Í lánabók Kaupþings sem lak út á síðasta ári kemur fram að heildarskuldbindingar Tchenguiz við bankann námu um 1,4 milljörðum evra. Þetta er mögnuð siðblinda og ekki nokkuri ábyrgð til að dreifa í kolli þessa manns nei hann vill meira enda búin að vera á blóðpeninga spenanum lengi, og hverjum blæði ? Jú Íslensku þjóðinni ! Það hefur komið fram að umsvifamaðurinn Robert Tchenguiz (Tsjengís) fékk miklar upphæðir að láni hjá Kaupþingi rétt áður en bankinn fór í gjaldþrot. Þá þegar var vitað að Tchenguiz sjálfur væri illa stæður.

Ljóst að hér er á ferð hreinræktaður skíthæll er þjóðin á að láta handtaka, dæma og fleygja lyklinum, það á að sjálfsögðu einnig við um samverkamenn hans Íslenska.

Hver er svo þessi peninga hungraði maður ?

Jú hann heitir Robert Tchenguiz (رابرت چنگیز) (f. 9. september 1960 í Teheran í Íran) er íransk/íraskurbusiness_Roberts Tchenguiz milljarðamæringur og viðskiptamaður sem sat í stjórn Exista sem átti stóran hlut í Kaupþingi fyrir bankahrunið.

Hann hefur sérhæft sig sem fjárfestir í fasteignum og fyrirtækjum. Árið 2007 var hann, ásamt bróður sínum Vincent, í 78. sæti yfir ríkustu einstaklinga í Bretlandi og Írlandi og voru þeir metnir á £850 milljónir breskra punda, fyrirtæki hans heitir R20.

Robert er náinn vinur Philip Green sem hefur stundað viðskipti með Baugi.

Faðir hans, Victor Kedourie Molaaem, var íraskur gyðingur sem var í innsta koppi íranska shahsins

Victor flúði frá Írak til Íran árið 1948 og breytti ættarnafni sínu í Tchenguiz sem er vísun í Genghis Khan á persnesku.

Eftir írönsku byltinguna fluttist fjölskyldan til London. Robert menntaðist alþjóðlegum almenningsskóla í Teheran en hélt svo til Bandaríkjanna og lauk námi við Pepperdine-háskóla í Malibu í Kaliforníu árið 1982. Þá starfaði hann á tímabili í World Trade Center í New York og stundaði viðskipti með olíu.

Robert hefur hann átt í nánu samstarfi við bróður sinn Vincent.Vincent Tchenguiz

Sagt er að faðir þeirra hafi gefið Vincent og Robert myndarlega fjárhæð sem þeir nýttu til fjárfestinga í fasteignum í Hammersmith-hverfinu í London.

Það rétta í þessu er að faðir þeirra skrifaði upp á veð til banka upp á miljón pund.

Árið 1982 settu þeir á laggirnar Rotch Property Group sem varð með tíð og tíma stórt fasteigna-eignarhaldsfélag.

Sem dæmi um nýleg viðskipti Roberts má nefna kaup ásamt öðrum í Shell-Mex House, skrifstofublokkir við Thamesá í London og kaup á 180 Shell-bensínstöðvum árið 2000 fyrir £300m sem þeir seldu 2006 fyrir £460m.

Í maí 2007 seldi hann og mágur hans, Vivian Imerman, hluti sína í skoska viskíframleiðandanum Whyte and Mackay til United Breweries Group á Indlandi fyrir £595 milljónir breskra punda.

Robert Tchenguiz
Robert Tchenguiz knows a good deal when he sees one. It is precisely this business acumen that has enabled him to grow an enterprise, which began with rental housing for students and tourists, into one of the most prosperous property groups in the UK. Robert Tchenguiz’s relationship with Kaupthing Singer & Friedlander is characteristic of his eye for sustainable performance. The Investment Banking division has repeatedly demonstrated just why Robert Tchenguiz calls on Kaupthing Singer & Friedlander. It is this reliability and capability to deliver on projects that keeps him coming back time and time again. Robert Tchenguiz is known among entrepreneurs for his financial savvy, unconventional funding strategies, and ability to realise a good opportunity when it presents itself. These are exactly the same qualities that make Kaupthing Singer & Friedlander his investment bank of choice.
Robert Tchenguiz

 

Já það er margt skrítið í kýrhausnum. 
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! 

mbl.is Tortólusjóður skuldara Kaupþings krefst bóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband